Yndin mín
myndalegastar
21.05.2006 19:56:13 / annam

bara orðin fluga

hei.... whats up...

Stelpan er byrjuð að fljúga, var að koma frá Spáni í nótt..þetta er heavy fínt job...alveg að nenna þessu sko;) Er í fríi í dag og á morgun og fer svo aftur af stað, tók þrjú flug í röð núna seinast þannig að þetta er kærkomið frí....

..magnað hvað farþegarnir eru æstir í að taka myndir af manni...get ekki sagt að það sér sérstaklega spennandi þegar maður er kannski með fullar hendur af rusli og allir að smellaþþþhvað er það!!!!

....þangað til næst..Anna Margrét out


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.05.2006 16:08:22 / annam

hæbb...

omg hvað ég hf bara ekkert að segja þessa dagana, er bara heima að tjilla þangað til ég fer í fyrstu flugin, fer í 10 flug í þessum mánuði og tvö standby....ég hlakka nú alveg ágætlega til að byrja að vinna fyrir utan það að uniforminn minn er allt of stór og það er verið að sauma nýjan á dömuna!!:)

En ég var bara róleg seinustu helgi með Halla mínum og börnum...við Embla fórum reyndar í bíó og fjölskyldu og húsdýragarðinn á mánud. með Dögg og Katrínu Ýri.

Hey ég lofa að ég fer að skrifa eitthvað sekmmtilegt á næstunni...var samt að skoða gamala bloggið mitt (annamargret10.blogspot.com) og omg hvað það vara mikið að skrítnum atburðum sem hentu dömuna þá!!!

Later kisskiss


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.04.2006 15:28:56 / annam

betra seint en aldrei...

Allaveg..hæbb,

Já bara svona til að svara forsetanum þá sótti ég um í Arhus og kopen....

hvað er að gerast í lífinu:

-Nýja íbúðin er voða kósý, ég og Halli unum okkur þvílíkt vel.

-er að fara að vinna sem flugfreyja í sumar

-er alveg ekki inn í fótboltanum þessa stundina

-sótti um í DK í tannlæknadeildirnar, ætla samt líka að sækja um hér heima þar sem það er bara erfitt að komast inn!!!

-var að koma frá DK var í fluffu ferð, fórum í flughermi, slökktum elda og gaman:)

-svo svona upp á gamla tíma er kannski ekki vitlaust að smella einni sögu á liðið...................

Sagan: sko það byrjaði þannig að Halli minn spurði hvort ég gæti sett hestana hans inn og gefið þeim að borða eitt kvöldið því hann þurfti að vesenast í öðru....eftir smá vonleysis svip ákvað ég að slá til og reyna....Hann sagði að þeir væru átta, tveir í hverjum bás og bara ekkert mál......

Þegar ég mætti á staðinn, í fína pilsinu mín, stígvélum og kápu, leit þetta bara ágætlega út, ég opnaði bara hliðið fyrir hestunum og þeir gengu bara alveg sjálfir inn vá hugsaði ég , þvílíkir atvinnumenn!!  svo fór ég inn í hlöðuna til að græja heyið og kem svo fram og ákvað að telja kvikindin...einn, tveir, þrír, fjórir, fimm, sex, sjö,....SJÖ..úpps, áttu þeir ekki að vera átta!!!

omg...ég hringdi í Halla og sagði "áttu hestarnir ekki að vera 8?"  jú sagði hann...Þá heyrðist " Halli ég er þá búin að týna einum" alveg var ég miður mín skiluru...hestur er ekkert ódýr sko!!! Halli sagði mér bara að labba fyrir ofan hesthúsið og sjá hvort ég sæi hann ekki þar, og jújú þar var hann að hlaupa fram og til baka á harða spretti, ég sagði honum það og hann sagði mér að opna hliðið niðri og að hesturinn myndi ábyggilega hlaupa þar inn sjálfur....og vitið menn að svo varð...en hesturinn fór náttúrlega ekki í sitt pláss...nei heldur fór á miðjan ganginn og reyndi að troða sér inn einhverstaða þar sem var fullt!!!

Guð minn góður...ég reyndi að ýta 500 kílóa flikkinu í rétta átt með engum árangri...eða bíddu hann færðist smá...æi eða kannski bara of mikið....hvað haldiði, minn snéri bara við og hljóp aftur út (ég veit núna að ég hefði átt að vera b úin að loka hurðinni út!!) ert ekki grinast, hesturinn aftur týndur....díses...aftur hringi ég í Halla og segi honum að nú sé hann endanlega horfin, ég að ég sæi hann hvergi....Halli sagðist þá ætla að reyna að koma sem fyrst, á meðan ég beið ákvað ég að rölta þarna í kring og eftir smá spotta sé ég að hesturinn stendur við hliðina á hesthúsinu og er þarna rólegur að éta frosið gras...

ég hringi strax í Halla og segi honum það...og hann segir mér að fara inn í hlöðu og ná í múl...HALLÓ múl, hvernig í ósköpunum á ég að vita hvað múll er!!! jújú hann leiðbeinir mér að græjunni og ég skelli á..hummmm okei þá var bara eitt enn, hvernig á þetta að snúa...ég æfði mig aðeins á hinum hestunum og passaði mig á að halda því alveg réttu þegar ég labbaði hægt að óþekka hestinum....en í alvöru þegar maður hefur aldrei séð svona dæmi þá kann maður bara alls ekki á það!!

útundan mér sé ég að það er eldri maður að fylgjast með stelpunni í pilsinu og hælaskónum...ég hugsaði guð hann heldur að ég sé þroskaheft....en hvað gat ég gert....jújú...beðið kallinn um aðstoð, það fór ca. svona fram:

ég:"heyrðu, geturu aðeins komið"

kallinn: (með bara ´skrítinn svip) "já"

ég:"kanntu nokkuð að setja þetta á??"

kallinn: (hugsaði pottþétt, ertu að grínast með þessa gellu er hún alveg farinn...og hann hló og sagði) "Já reyndar, hver ert þú eiginlega?"

ég: (jafn kjánaleg og áður) ég átti sko að setja hestana inn fyrir Halla og ég kann það ekki....

kallin:"okei ég skil, gerðu svo vel, bjargaru þér héðan af?"

ég :"já takk"

svo er ég að labba með kvikindið í hesthúsið aftur í hænuskrefum þanmnig að hann færi ekki að hlauða aftur, mæti ég ekki þá Halla mínum, kominn til bjargar....ég sagði honum söguna og það sem ég fékk að heyra var "OHHH...gafstu þeim ekki að borða fyrst"...HALLÓ nei það gerði ég ekki því enginn sagði mér að gera það...neinei þá átti það víst að vera eitthvað svona common sence dæmi sko...usss já magnað ha!!!!

jæja ef þið hafið eitthvað að segja endilega kommentiðið...

later


» 10 hafa sagt sína skoðun

19.02.2006 11:56:31 / annam

jæja...tími til kominn..

...er að fara að flytja á eftir..VEI...ég og Halli erum að fara að flytja í Lækjasmára í Kópavogi, fengum þessa æðilegu íbúð....:)

ekkert er að frétta af símanum mínum...en það er bara hart á móti hörðu og ég ætla að láta rekja kvikindið...bara snilld sko...

En annars er ég bara að sækja um Tannsann í Danmörku og Svíþjóð...vona að það gangi upp....

later


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.02.2006 21:15:51 / annam

úff...ekki batnar það, guð minn góður!!

Það á ekki af mér að ganga, hvað haldiði, jújú ég týndi símanum mínum um helgina!! æðislegt, eins og þið vitið sem þekkið mig þá kann ég ENGIN símanúmer þannig að ég ekki láta ykkur bregða ef ég hringi bara aldrei í ykkur!!:/ ætla samt að fá mér nýjan síma sem fyrst og þá megið þið endilega senda mér símanr ykkar á smsi..ég læt vita...

en svona til gamans eru þetta númerin sem ég man af þeim 100 og eitthvað sem eru í símanum mínum:

mamma+pabbi

Dögg

Dagný

Raggi (þetta eru systkinin mín)

Halli

Jóna

Tinna

Erna

Dúna

....já ekki alveg með þetta þessa dagana stelpan smu:(


» 9 hafa sagt sína skoðun

01.02.2006 22:50:51 / annam

sorgardagar..:(

hæbb...er ekkert að kafna úr stuði þessa dagana, var að frétta að ytra krossbandið á vinstri fæti er slitið og ég fer ekki með í æfingaferð til Portúgal..hummm jahá, ekki alltaf gaman að lifa:/

Er að vinna bara aðeins í Oasis, ekki á fullu þar sem að ég er í sjúkraþjálfun á fullu í endurhæfingu á löppinni og líkamanum sjálfum þar sem ég er ekki búin að æfa svo lengi....já og vá hvað ég er aum og í ENGU formi, þetta er alveg sorglegt að sjá!!!

Er í fríi um helgina og það er búið að bjóða mér í tvö afmæli og stelpupartý..ætla að kíkja í eitthvað af þessu þá sjáldan að maður lifti sér upp;) Halli minn er samt að vinna alla helgina þannig að ég þarf að gera eitthvað sniðugt, eins og t.d. að þvo fötin mín síðan á Kanarí..humm já góð hugmynd:) hehe

later


» 5 hafa sagt sína skoðun

10.01.2006 13:07:39 / annam

smá fréttir

  • Hæbb...fór í aðgerð á hnénu 4. janúr, gekk held ég bara fínt, er að fara til læknisins á eftir:) fór í klippingu áðan og lét slatta af ljósum strípum áðan, lítur bara þokkalega vel út...

Ég  og Halli erum að fara til Kanaraí í tvær vikur í fyrramálið..úff fine... Annars er stelpan bara í góðum málum;) lov u bæjó


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.12.2005 22:19:52 / annam

GLEÐILEG JÓL ELSKURNAR:)

ÉG HLAKKA TIL AÐ SJÁ YKKUR ÖLL Á NÝJU ÁRI...VERÐ REYNDAR Á KANARÍ MEÐ HALLA FRÁ 11. JAN TIL 25...EN NÚ JÆJA HVEAÐ GET ÉG SAGT...

LOVE U KISSKISS


» 6 hafa sagt sína skoðun

15.12.2005 14:40:19 / annam

Hver er að nota mig...

jésús minn...hvað get ég sagt....ég ákvað í sakleysi mínu að kíkja á mailið mitt og vitið menn...ég var með mail sem headlinið var "velkomin í Liverpoolklúbbinn"...hver í ansk....skráði mig í Liverpoolklúbbinn??!! Mér finnst þetta nú reyndar bara fyndið ...en ekki hvað...!!

later


» 10 hafa sagt sína skoðun

11.12.2005 11:35:57 / annam

lifðu lífinu....

úff...vá mar, stelpan er búin að vinna svo ógðeslega mikið...en frí í dag og á morgun, ójá...reyndar vaknaði ég hálf tíu á sofa út deginum mínum, en það er í góðulagi þar sem ég er ekki að fara að gera neitt í dag....uss fine!!!

ÉG gleymdi nú alltaf að segja ykkur smá ferðasögu frá London, gefið ykkur tíma og lesið...bara fyndið (eftir á):

Sko ég og Erna komum á flugvöllinn klukkutíma fyrir brottför til að tékka okkur inn.......við vorum þvílíkt ánægðar með að það var engin röð á deskinu en fórum samt að efast smá hvort flugið væri ekki öruglega klukkan níu......en svo litum við á sjónvarpsskjáinn og sáum að svo var þannig að við rúlluðum með hálftómar töskur upp að tékkinndeskinu.......... þar sýndum við passana okkar í okkar mikla sakleysi og biðjum dömuna um að reyna að láta okkur sitja frekar framalega ef hún vildi vera svo væn...á meðan við stóðum þarna tvær með sakleysið uppmálað og vissum ekkert hvað biði okkar fletti konan upp í tölvunni og segir svo: "humm...það eru nú reyndar bara tvö sæti laus og annað er í 24A og hitt 20A"...nú jæja, við vorum semsagt að fara saman til London en sitja á sitthvorum staðnum í fluginu í 3 klukkutíma..okei...jæja það varð sem var....Þegar við stigum upp í vélina kvaddi ég fallegu vinkonu mína með tár í augunum og reyni að skima eftir sæti númer 24A..jújú þarna var það, aleitt og yfirgefið upp við gluggann....þegar nær er komið blasa við mér tvær tvíburastúlkur sem sitja í 24 B og C.........það er í góðu lagi nema hvað að ég drusla dótinu mínu upp í overhead lockers en er þó nógu klár að taka slúðurblað sem Erna hafði keypt úr töskunni mér til mikillar gleði að hafa eitthvað að gera. Svo var það að koma sér í sætið........ég byrja á því að bjóða þeim kurteisislega gluggasætið ef þær vildu...til baka fékk ég mesta fúla nei og svip sem ég hef nokkurtíman sé í þessu lífi.........kræst !!! var bara að reyna að vera góð sko!!!(eins og þið vitið þið sem þekkið mig eitthvað)....jæja þá var bara að klöngra sér inn...úff ég sá fram á langt flug....nem humm........jú ef ég gæti nú sofnað þá líður tíminn einn tveir og tíu..........ég kveiki á ipodinum og finn strax uppáhalds lagið mitt Living next door to Alice.....já það klikkar sjaldan mar....svo eru það rólegheit og ég fer að dotta...man svo ekki fyrr en ég fæ fast og þá meina ég svona þokkalega neglu olbogaskot beint í öxlina á mér, ég opna augun og tek um hendina á mér og sé tvibbagelluna stara á mig og segja svo "MATUR!!!".........Klárlega borða ég ALDREI flugvélamat....díses ég afþakkaði pent þetta ótrúlega kurteisa boð hennar og lagðist aftur niður...neinei ....ég finn mig reyna að kreista augunum aftur eins og hægt er...koma Anna Margrét, þú verður að sofna stelpa.....en nei.......ég var glað vöknuð...jesús....jæja, þá er bara að kíkja í slúðurblaðið....ég fletti í sakleysi mínu síðu eftir síðu....jæja er svo hálfnuð með blaðið...bíddu bíddu....ég hef séð þessa stelpu áður hver er þessi stelpa´...ég les toplænið á síðunni "The new Americas top model"...dem ég loka augunum, segðu mér að þetta hafi ekki gerst!!!OHHHH jújú þetta var stelpan sem vann Americas next topmpdel Naomi eða eitthvað svoleiðis...frábært flugferðin gat nú ekki verið meira misheppnuð, eða hvað??.......jú ég ákvað að gera mér leið á klósettið og koma við hjá Ernu og láta hana fá helv....blaðið sitt!!! Ég  segji við tvibbana " ég þarf að komast á klósettið" svarið sem ég fékk til baka var: "getur ekki baðið þangað til þær taka matarbakkana og það burt!!!" það hefði alveg eins geta komið hálfvitinn þinn á eftir þessari setningu omg...ég setti upp spari brosið og sagði "jújú"...ég snéri mér aftur að glugganum með vonbrygðisvipinn á andlitinu......svona svona Anna Margrét bara einn og hálfur tími eftir....Loksins komst ég svo í burtu...ég kíkji yfir til Ernu en sé að stúlkan sefur svo vært...skrepp á klósettið og hendi slúðurblaðinu í bakaleiðinni í 20A....Aftur sest ég í 24A ekki við mikinn fögnuð tvibbanna....tíminn leið...fúl fúlari sátu allt flugið með fýlusvipinn á sér...hei...10 mín til lendingar...eða nei ...."þetta er flugstjórinn sem talar, vegna mikillar flugumferðar á flugvellinum verðum við að vera lengur í loftinu"...jesús...ert ekki að grínast....nei hálftími í viðbót í helvíti......jæja loksins lendum við.....Allir traðka mig niður og vilja koma sér út....loksins stoppar einn maður, ég átti smá von að komast á milli...ég fer upp í skápana til að ná í dótið mitt...(var með fluffutösku)...og er eitthvað að vandræðast með að ná henni og tók það víst of langan tíma hjá mér því áður en ég vissi af er maðurinn byrjaður að reyna að troða sér og fjölskyldu sinni framhjá mér....guð minn almáttugur, það átti ekki að mér að ganga....ég skröllti svo loksins með seinunstu mönnum út úr vélinni....þar tekur Erna borsandi út af eyrum á móti mér....ný búin að kveðja gamla góða fólkið sem hún sat hjá, fannst hún eins og litla dóttir þeirra...leifðu ehnni að lúlla og svo var bara nammi og krúttlegar samræður.......úff ósanngjarnt, en ég gat glottað yfir því að hún vissi nú líka hver var Americas next top model...HAHA.....þó að það sé alls ekki gott að hefna sín...en kommon...hún keypti blaðað!!!!

.....já....boðskapur sögunnar....ekki reyna að ver töff og mæta síðastur á flugvöllinn....!!!!

later


» 39 hafa sagt sína skoðun

07.12.2005 20:07:06 / annam

Jólin koma í bráð....

hæbb... stelpan er bara þokkalega hress, er bara að vinna ógeðslega much og svona...enda styttist óðum í jólin, vá hvað ég hlakka mikið til og sérstaklega þar sem ég er búina ð kaupa allar jólagjafirnar í London;)

ég kíkti á æfingu í gær, það var svo gaman að hitta stjörnurnar, en það vantaði reyndar litlu fallegu systur mína, sakna hennar bara sko...

Það var allt rafmagnslaust í Garðabænum í gær þannig að æfing féll n iður...við ræddum bara æfingaferðina til portó og svona í staðin...það verður bara gaman VÁ!!!

Annars þá ætla ég að vinna á laugadaginn og kannski kíkja í bíó um kvöldið..hafa það bara kósý með honum Halla mínum....

later


» 52 hafa sagt sína skoðun

29.11.2005 20:33:49 / annam

Úff, hvað get ég sagt:/

jæja, hvað haldiði...stelpan var að fá út úr myndatöku af hnénu og kom það í ljós að það er rifa í miðijum liðþófanum, liðböndin eru bólgin og eitthvað dót undir hnéskelinni er bólgið og fullt af vökva sem á alls ekki að vera þar og vill ekki fara... já það er ekki alltaf gaman að lifa:cry: smu

Allavega það góða í lífinu er að ég get hlunkast á meðan..það er ekki verra;) hehe

Það gengur nú ekki mikið á hjá mér þessa dagana...er bara að vinna í Oasis og krúttast með Halla mínum...Svo er reyndar jólaboð hjá vinnunni næsta laugadag, það verður voða fínt held ég bara:)

Sakna Stjarnanna minn ótrúlega mikið, ég elska ykkur allar elskurnar mínar..kisskiss

later


» 7 hafa sagt sína skoðun

18.11.2005 20:53:39 / annam

TIL HAMINGJU BERGLIND

INNILEGA TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ ELSKU BERGLIND MÍN...25 BEIBÍ:)

» 3 hafa sagt sína skoðun

14.11.2005 22:08:26 / annam

Dökkhærðir dagar framundan...

Já...þið lásuð rétt, stekpan er orðin dökkhærð..hvað er það!!??

Ég fór á æfingu á fimmtudaginn og það var æði, hitta allar elskurnar mínar aftur...bara notalegt sko... Svo kepptum við æfingaleik á laugadaginn og þá var gamla alveg búin...fór útaf meidd í hálfleik!!uss...ekki alveg með þetta sko!! Fékk samt símtal frá Lúðvík hjá úrval útsýn í dag og hann sendi mér portúgal og spánarferð um páskan á maili..VEI!!!

Svo á laugadagskvöldið fór ég á árshátíð hestamanna með Halla...uss já þetta var nákvæmlega jafn fyndið og þið haldið...fullt af fullum hestamönnum komnir saman á Hátel Íslandi, við getum rétt ímyndað okkur umræðuefnin í þeirri veislunni..hehe;) En það var nú bara ágætt eftir allt saman:)

later


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.11.2005 11:52:55 / annam

London bara fine

Jæja komin frá London...úff þetta var svo góð ferð... ég og Erna tókum heldur betur á því:

-borðuðum mc donalds 4x

-jólagjafakaup= lokið

-Oxford er með þetta

-modelstörf...já!!!

-túristar í tveggjahæða strætó, algjörlega

-sofið..MIKIÐ

-komnar með leið á að versla=ALLS EKKI

...já London klikkar sjaldan!!!

svo er kannski frásögufærandi að ég ætla að láta sjá mig á æfingu á stjörnuvelli á morgun...enda komin tími til!!

later


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5